miðvikudagur, 16. apríl 2008

Lokafærslan

Langskemmtilegasta fagið í ár var án efa kvikmyndagerð (reyndar var samkeppnin ekki uppá marga fiska...). Kvikmyndagerð fær 8,9 á imdb of fjallar um...

Fagið var mjög tilraunakennt og öll skipulagning ný af nálinni. Við prófuðum okkur áfram allt árið og skipulögðum það bara jafn óðum, þótt það hafi verið ákveðið handrit í upphafi var mikið vikið út af því ef maður líkir þessu við kvikmyndagerð. Það var góður mórall í námskeiðinu og það var alltaf frekar opin umræða í gangi, sem var mjög gaman.

Það sem stendur uppúr er pottþétt stuttmyndagerðin sem er langmestspennandi þátturinn við kvikmyndagerð og ég held að flestir sem velja fagið vilji hafa verklega þáttinn sem stærstan. Það hefði verið gaman að hafa þannig verkefni í gangi allt árið til að nýta myndavélina og tölvuna sem best. Klippitölvan er alveg ótrúleg græja og með nægum tíma er hægt að gera endalaust af skemmtilegu dóti í henni. Þar sem við fengum tölvuna ekki fyrr um mitt skólaárið var það ekki hægt í ár. Mér fannst stuttmyndagerðin nýtast manni best, maður lærði langmest í kvikmyndagerð á henni en handritagerð er líka mikilvægur þáttur. Aðalreglan sem maður lærði var að vera skipulagður í þessum bransa. Það er líka mjög gaman að fá leikstjóra í heimsókn.

Það verður ýmislegt sem verður hægt að bæta fyrir næsta ár. Það var of mikið að verkefnum troðið í námskeiðið í upphafi og þau hlóðust upp í endinn og sleppa varð einhverjum verkefnum. Mér fannst of mikið fjallað um gamlar kvikmyndir og of mikið af þeim sýnt. Það mætti líka vanda betur valið á myndum, margar voru ekki að slá í gegn en hver hefur sinn smekk...

Bloggkerfið þarf líka að hugsa vel. Það þyrfti að hvetja menn meira til að blogga, og setja jafnvel bloggkvóta í hverri viku og dæma færslur þá. Menn þyrftu að pósta kannski 1-2 færslum á viku. Þegar í ljós kom að menn voru ekki að ráða við 30 blogga kvótann hefði átt að lækka aðeins kröfurnar en þá kom allt í einu nýtt kerfi sem setti miklu meiri kröfur á menn en áður. Þetta kerfi er í raun mjög sniðugt (þótt það sé mikil aukavinna fyrir Sigga Palla) og það ætti endilega að nota það áfram, en það þyrfti kannski aðeins að breyta því, því þessar löngu færslur taka heila eilífð að skrifa. Nú er samt meira vit í færslunum hjá öllum og skemmtilegra að lesa þær. Gömlu bloggin voru mörg frekar óspennandi. Þetta nýja kerfi er ef til vill bara ágætt eftir allt saman... En það mætti allavega dæla fleiri stigum í þessar færslur.

Nú er ég kominn með ógeð af því að blogga og mun líklega aldrei gera það aftur á ævinni, eftir þessar 15 færslur á örfáum dögum. Ég nenni ekki að hafa þessa færslu lengri og vill bara hrósa Sigga Palla fyrir frábært fag og þar með hef ég pikkað inn minn síðasta staf. Jess...

PS. Youtube videóin ættu að virka, þau eru öll inni enn og virka alla vega hjá mér...

2 ummæli:

Siggi Palli sagði...

Fínar athugasemdir. 7 stig. Þá ertu með 86 stig á vorönn.

Þetta með youtube myndbrotin var greinilega eitthvað rugl í tölvunni niðri í skóla.

Ég tek undir það að það hefði mátt skipta blogginu niður í smærri einingar. Er að hugsa um að gefa fyrir hvern mánuð næst.

Miðað við það að yfirlýst markmið með því að sýna gömlu myndirnar var að vekja áhuga ykkar á kvikmyndasögunni, þá er líkast til rétt að ég hefði getað valið aðgengilegri myndir.

Nafnlaus sagði...

Hello. This post is likeable, and your blog is very interesting, congratulations :-). I will add in my blogroll =). If possible gives a last there on my blog, it is about the Webcam, I hope you enjoy. The address is http://webcam-brasil.blogspot.com. A hug.